Kronlyset
Kronlyset
Kronlyset

Kronlyset

Venjulegt verð 4.200 kr
Venjulegt verð Útsöluverð 4.200 kr
Litur:
Magn:

Kronlyset eru handsteypt kerti sem framleidd eru úr 100% steríni sem unnið er úr umhvefisvænni pálmaolíu, viðurkenndri af RSPO, og bíflugnavaxi. Hið rétta hitastig við gerð kertanna skapar munstrið sem í þeim er svo hvert og eitt kerti fær sitt eigið útlit. Bómullarþráðurinn tryggir að kertin brenni hægt og jafnt. 

Kertin eru umhverfis og ofnæmisvæn.  

Kertið fæst í nokkrum litum. 100% umhverfisvænt sterín úr pálmaolíu. Kertin passa í venjulega kertastjaka.

Árið 1950 stofnaði Jens Andreas Dahl Hansen kertaverksmiðjuna HYGGELYS í Kaupmannahöfn og varð leiðandi í framleiðslu á kertum fyrir kirkjur víða í Danmörku. Hann hannaði fallegt og minimalískt kerti sem var fært um að standa sjálft á borði og gólfi. Kertið hefur síðan verið þekkt sem ALTERLYSET. Fjórða kynslóð sér nú um framleiðslu og dreifingu á kertunum í Evrópu.

Nú rúmum 70 árum síðar er komin nýjung frá fjölskyldunni, KRONLYSET. 

Athugið:

  • stytta skal þráð niður í 1 cm áður en kveikt er á kerti
  • forðist að hafa kerti í dragsúgi
  • látið kerti aldrei loga án eftirlits
  • hreyfið aldrei kerti með fljótandi vaxi
  • staðsetjið kerti þar sem börn og dýr ná ekki til
  • ekki brenna kerti lengra niður en að efri brún á fæti
  • mælt er með að nota kertaslökkvara þegar slökkt er á kerti