
Alterlyset
Alterlyset
3.000 kr
Árið 1950 stofnaði Jens Andreas Dahl Hansen kertaverksmiðjuna HYGGELYS í Kaupmannahöfn og varð leiðandi í framleiðslu á kertum fyrir kirkjur víða í Danmörku. Hann hannaði fallegt og minimalískt kerti sem var fært um að standa sjálft á borði og gólfi. Kertið hefur síðan verið þekkt sem ALTERLYSET. Fjórða kynslóð sér nú um framleiðslu og dreifingu á kertunum í Evrópu.
ALTERLYSET eru handsteypt kerti sem framleidd eru úr 100% steríni sem unnið er úr umhvefisvænni pálmaolíu viðurkenndri af RSPO. Bómullarþráðurinn tryggir að kertin brenni hægt og jafnt. Stafirnir á aðventukertunum og dagatalakertunum eru handprentaðir með umhverfisvænu vaxi.
Þvermál: 3,9 cm
Hæð: Fjórar stærðir
Brennslutími: c.a 1 klst fyrir hvern cm.
Athugið:
-
stytta skal þráð niður í 1 cm áður en kveikt er á kerti
-
forðist að hafa kerti í dragsúgi
-
látið kerti aldrei loga án eftirlits
-
hreyfið aldrei kerti með fljótandi vaxi
-
staðsetjið kerti þar sem börn og dýr ná ekki til
-
ekki brenna kerti lengra niður en að efri brún á fæti
-
mælt er með að nota kertaslökkvara þegar slökkt er á kerti