Ilmolíulampar | Brass | Ál
Ilmolíulampar | Brass | Ál

Brandt

Ilmolíulampar | Brass | Ál

19.800 kr

Ilmolíulampi í einföldu og fallegu formi.

Brennarinn (ilmolíuskálin)  er úr brenndu brassi og mun oxiderast með tímanum. Engin húð hefur verið borin á brassið svo við mælum með að verja vöruna gegn matvælum með mikilli sýru sem og sterkum hreingerningarefnum.

Hvernig nota skal olíulampann:

Setjið sprittkerti í hólfið undir skálinni. Fyllið 1/3 af skálinni með vatni og bætið við 2-4 dropum af ilmkjarnaolíu. Kveikið á kertinu og bíðið þar til ilmurinn fyllir rýmið. 

Munið að fylla á vatnið áður en það gufar upp, á meðan kertið er tendrað. Einnig er hægt að bæta við fleiri dropum af olíu. 

Aðeins er mælt með því að nota olíulampann í mesta lagi 3 sinnum á dag í 30-40 mínútur í senn. Leyfið lampanum að kólna eftir notkun áður en skálin er þrifin með rökum klút. 

Öryggisupplýsingar:

• Setjið lampann á hitaþolinn stað með sléttu undirlagi. 
• Haldið lampanum frá öðrum innanhússmunum, til dæmis gardínum.
• Haldið lampanum frá börnum og dýrum. 
• Aldrei skilja tendrað kerti eftir óséð.
• Gætið að því að vatnið gufu ekki upp á meðan lampinn er í notkun. Fyllið á vatnið á meðan það er enn vatn í skálinni. Slökkvið á kertinu og leyfið skálinni að kólna áður en þið notið lampann aftur. 
• Ekki snerta olíulampann á meðan hann er í notkun og ekki stuttu eftir að slökkt hefur verið á honum þar sem málmurinn verður heitur. 

Sprittkerti og olía er ekki innifalið.

 

Efni:
Brennt brass | Ál

Mál:
– Þvermál: 7cm
– Hæð: 8,2cm
– Þyngd: 1,8kg

Frekari upplýsingar:
– Smá litamunur getur verið milli mynda á skjánum og í raunveruleikanum.
– Þrífið með rökum klút.